Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Breytingar

Jæja spurning hvort að maður sé að komast á breytingaraldurinn eða hvað!!! LoL Allavega eru nokkrar breytingar framundan hjá mér um þessi mánaðarmót. Fór í kvöld upp á Bifröst og kláraði að taka síðustu húsgögnin í bæinn. Er sem sé að flytja í Garðabæinn. Þess má geta að lögreglurassíunni var lokið er ég kom uppeftir svo ég missti af henni til allra lukku. Nú svo við höldum áfram með breytingarnar, þá mun ég hætta að krassa í Teigaselinu um helgar og þegar ég er í bænum, þar sem að ég er eins og áður segir að flytja í Garðabæinn. Nú, ég er búinn að fá vinnu sem fulltrúi hjá Sýslumanni hér rétt fyrir utan höfuðborgina og mun ég hefja störf á mánudaginn, sem þýðir að ég mun hætta að keyra TAXA um helgar og í afleysingum. Væntanlega verður þetta því síðasta helgin mín sem ég mun keyra leigubíl og það er bara góð tilfinning.

Er ég byrjaði á Bifröst þá var nú fyrsta markmiðið bara að klára Frumgreinadeildina og sjá svo til, það tókst og þá var ákveðið að klára bs gráðuna í Viðskiptalögfræði, svo átti nú bara að fara út á vinnumarkaðinn og fara að vinna. Nú það tókst að klára þessa bs gráðu og gekk bara ágætlega, þá fór maður að hugsa að maður þyrfti nú ekki að bæta svo mikið við sig í viðbót og þá væri maður orðinn að lögfræðingi, nú er það komið langleiðina í hús, farið að sjá vel fyrir endanum á því og þá er maður farinn að hugsa um að taka Héraðsdómslögmannsréttindin í byrjun árs 2009. En þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur tími og að vissu leyti synt að honum skuli vera að ljúka núna en líka viss tilhlökkun yfir framtíðinni.

Sem sé í stuttu máli, fluttur af Bifröst, fluttur í Garðabæinn, hætti að gista í Teigaselinu um helgar, hætti að keyra TAXA og er kominn með nýja vinnu sem fulltrúi hjá sýslumanni. Svo mun ég í haust klára endanlega ML-gráðuna og verð þá ekki lengur viðskiptalögfræðingur, heldur lögfræðingur. Svo stefnir maður á að taka Héraðsdómslögmannsréttindi innan árs eða svo.

Góðar stundir


Mission Hvanndalshnjúkur

Góð vinkona mín tjáði mig um daginn að hún væri búinn að skrá mig í gönguferð með vinnunni sinni. Ég sagði bara flott, líst vel á það, hvert á annars að fara? Jú það er HVANNADALSHNJÚKUR, takk fyrir. Búinn að vera að velta þessu soltið fyrir mig, vissulega spennandi að fara á Hnjúkinn, en ég verð bara að vera hreinskilinn, ég gæti verið í betra formi og einhvern veginn tel ég að það sé lykilatriði að vera í góðu formi fyrir slíkt mission sem Hvannadalshnjúkur er.

Nú ekki ætla ég að gefast upp fyrirfram og hef því ákveðið að koma mér í form. Í dag var æðislegt veður hér i höfuðborginni og sá ég mér færi á að  plata hana til að ganga upp Esjuna. Það átti sko að taka á því og fara nánast alla leið upp, en ég ætla ekki að segja ykkur hvað þetta var erfitt. Frown  Svo í þetta sinn fórum við rétt aðeins upp í hlíðarnar, vorum nú ekki alveg sammála um hversu langt við höfðum farið, en ég hefði viljað geta sagt að það hefði verið mun lengra.Whistling En eins og áður segir þá gefst maður ekkert upp, heldur setur sér bara takmark. Nú á að labba á Esjuna hið minnsta þrisvar í viku og ég skal ná toppinum áður en langt um liður. Ég hef þrjá mánuði í að koma mér í gott form fyrir gönguna stóru og það skal takast. Hún er að vísu í betra formi en ég, kannski er það sökum þess að hún er helmingi léttari en ég og talsvert yngri en ég.GetLost En ég stefni á að vera ekki í síðra formi en hún þegar á hólminn eða réttara sagt Hnjúkinn verður komið.

Að lokum skal geta þess að ég er eini meðlimi Gönguklúbbsins Leifur Lost sem fer í þessa göngu, en sá ágæti gönguklúbbur hefur einnig á prjónunum einhverjar göngur í sumar, allavega var verið að tala um Leggjabrjót. Svo að sumarið fer í gönguferðir, vinnu og mastersritgerð.

Góðar stundir


Dómar sem vert er að kynna sig.

Í dag féllu tveir héraðsdómar sem ég tel vert að skoða. Hugsanlega verður þeim báðum áfrýjað til Hælstarrétts, það á eftir að koma í ljós.

Annars vegar er um að ræða dóm í Héraðsdóm suðurlands í svokölluðu þvagleggsmáli. En þar var kona ákærð fyrir ölvunarakstur og var neydd til að gefa þvagsýni. Fróðlegt að vita hversu langt má ganga í svona málum.

Hins vegar er það dómur frá Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem að maður var dæmdur fyrir bloggskrif. Verð að segja eins og er að ég fagna því að menn séu dæmdir fyrir bloggskrif, svo lengi sem að bloggskrifin séu ærumeiðandi. En sumir aðilar virðast telja sig geta skrifað hvað sem er á blogginu, sjálfur hef ég fengið athugasemdir þar sem að mér er líkt við Hitler og Satan af aðila sem ég þekki ekki neitt. Spurning hvort að ég ætti að stefna viðkomandi, sjáum til.

Það verður fróðlegt að vita hvort að þessir dómar verði áfrýjaðir, að mörgu leyti væri það ágætt ef svo yrði, svo að Hæstarétti gæfist tækifæri til að fara yfir þessa dóma.

Góðar stundir


Syngjandi kalkúnn

Nú kemur hvert lagið á fætur öðru sem mun berjast um sigur í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

 

Einhvern veginn þykir mér þetta lag ekki líklegt til sigurs, en hver veit.


Merzedes, nei meina Eurobandið

Þá er orðið ljóst hvaða lag fer út og keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision. Eins og kemur fram í síðustu færlsu þá bjóst ég við því að Merzedes myndu vinna en annað kom á daginn og Eurobandið sigraði. Óska þeim til hamingju með sigurinn, það verður gaman að fylgjast með þeim. Þess má geta að ég vann einu sinni með Regínu, það var hjá Pennanum.

Vonast allavega til að við fáum að vera með í aðalkeppninni í ár.

Góðar stundir


Eurovision, nei takk...

...ég ætla ekki að fylgjast með eurovision í kvöld. Í kvöld er nefnilega BIFRÓVISION. Þar verður væntanlega mun meira spenna en í eurovision, enda vitum við að þetta lag hér mun sigra hið Íslenska eurovision og verður framlag okkar í vor og mun allavega komast áfarm ef ekki barasta sigra.

 

En það verður spennandi að sjá hvaða lög verða flutt á Bifró og svo loks hvaða atriði sigrar. En þetta er í síðasta sinn sem ég mun mæta á Bifró og það verður BARA GAMAN.

Góðar stundir.


Er það löglegt ef...

simpson_poker_thmb...nógu margir framkvæma verknaðinn?

Miðað við að lesa viðtal við Guðna Ágústsson formann Framsóknar þá mætti halda það. En haft er eftir honum í grein á visir.iseftirfarandi "Ég ætla því ekki að fordæma þessa þáttöku Birkis enda stunda þúsundir manna þetta hér á landi," segir Guðni."  Þarna er hann að vitna i pókermót/fjárhættuspil sem þingmaður flokksins, Birkir Jón Jónsson tók þátt í um daginn. Ekki ætla ég að gagnrýna það að formaðurinn skuli ekki fordæma þátttöku þingmannsins í fjárhættuspilinu, en rökin fyrir því að hann ætli sér ekki að fordæma manninn eru ekki góð að mínu mati. Enda mætti með sömu rökum segja að það sé óþarfi að fordæma þá sem aka of hratt, því að þúsundir manna aka of hratt. Lögbrot eru ekki lögleg þó svo að þúsundir manna framkvæmi þau, það kallast virðingarleysi fyrir lögunum.

Ef að þingmaðurinn er í mun að spila fjárhættuspil, hvernig væri þá að byrja á því að leggja fram frumvarp um breytingu á lögunum til að gera fjárhættuspil lögleg, það er ef það er á gráu svæði eins og Birkir segir, áður en hann byrjar að spila á opinberum vettvangi?

Framsókn er reyndar einn af þrem flokkum sem ég hef kosið um ævina, ef þeir halda þessari stefnu áfram viljiði þá hnippa í mig ef ég er líklegur til að fara að kjósa þá næst.

Góðar stundir

 


Áfall, lestarsamgöngur og Vinstri grænir

Á dauða mínum átti ég von á en að ég og Vinstri grænir yrðum sammála um eitthvað var það síðasta sem mér datt í hug. Þetta er eiginlega áfall fyrir mig. Sérstaklega í ljósi þess að "Vinstri Grænn" er skammarorð hjá einum kunningja mínum. En þetta hljóta að vera mistök, ég meina Vinstri Grænir eru alltaf á móti öllu, hvernig í ósköpunum geta þér þá verið sammála mér!!!!!!!!! Hvað hef ég gert til að verðskulda þetta, já þetta er stórt áfall. Er kannski komin stefnubreyting hjá Vinstri grænum, þ.e. að vera sammála mér.

Ætli ég sé kannski á undan minni samtíð,Woundering en þann 16 nóvember, sem var 10 bloggfærslan mín á þessari síðu talaði ég um lestarsamgöngur, að það væri sniðugt að reikna út í dag hagkvæmni þess að taka slíkar samgöngur upp á Íslandi og þá sérstaklega á milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Viti menn, núna er Árni Þór Sigurðsson þingmaður VG að tala um þetta á heimasíðunni sinni og ekki nóg með það heldur er einnig búið að flytja þingsályktunartillögu um þetta.

Ég vona bara svo sannarlega að ég sé ekki að breytast í Vinstri Grænn. Sick En ég er samt enn á því að það eigi að athuga með hagkvæmni lestarsamgangna. Að vísu hef ég ekki góða reynslu af lestum, þær eiga það til að bila þegar ég nýti mér þær erlendis. Var einu sinni heillengi í Boston að reyna að kaupa mér miða í lest, því að það var svertingi á undan mér á einhverjum efnum og vildi kaupa lestarfar frá Boston, USA yfir til Afríku og var ekki að skilja að lestir færu ekki frá USA til Afríku. Loksins tókst mér að kaupa minn lestarmiða frá Boston til New York, en lestin bilaði á leiðinni og í það sinn komst ég ekki til New York. Í Englandi tók ég einu sinni lest frá Birmingham til Stanstead og getið hvað, lestin bilaði á leiðinni þannig að ég og ferðafélagi minn urðum að hoppa yfir í aðra lest.

En að lokum vill ég biðja vini og kunningja um að pikka í mig ef þeim sýnist hætta á því að ég fari að styðja eða kjósa Vinstri Græna.

Góðar stundir.


Strange Facts

Saturday mail delivery in Canada was eliminated by Canada Post on February 1, 1969!

In Tokyo, a bicycle is faster than a car for most trips of less than 50 minutes!

There are 18 different animal shapes in the Animal Crackers cookie zoo!

Should there be a crash, Prince Charles and Prince William never travel on the same airplane as a precaution!

Your body is creating and killing 15 million red blood cells per second!

The king of hearts is the only king without a moustache on a standard playing card!

There are no clocks in Las Vegas gambling casinos!  

There is one slot machine in Las Vegas for every eight inhabitants!

  The Mona Lisa has no eyebrows. It was the fashion in Renaissance Florence to shave them off! 


Every day 20 banks are robbed. The average take is $2,500!

The most popular first name in the world is Muhammad!

Tablecloths were originally meant to be served as towels with which dinner guests could wipe their hands and faces after eating!

Tourists visiting Iceland should know that tipping at a restaurant is considered an insult! Eins gott að vita þetta.

One car out of every 230 made was stolen last year!  

The names of Popeye's four nephews are Pipeye, Peepeye, Pupeye, and Poopeye!

Laust embætti héraðsdómara

Rakst á auglýsingu um laust embætti héraðsdómara við héraðsdóm Reykjaness. Var svona að spá í hvort að ég ætti að sækja um, en þá mundi ég eftir öllum látunum út af skipunum í dómaraembætti undanfarið og ákvað að sleppa því að senda inn umsókn. Enda hef ég ekki setið í dómnefnd bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar, en ég hef samt víðtæka reynslu af félagsstörfum. Kannski að ég leggist bara undir feld og íhugi málið. Ætla að taka svona ca 10 sekúndur í það.

Jæja eftir smá umhugsun ef ég endanlega afráðið að sækja um starfið. Enda tel ég bráðnauðsynlegt að sátt skapist um veitingu dómaraembætta og ætla rétt að vona að það finnist hæfari einstaklingur en ég í það. Kannski eftir 10 ár verði ég sá hæfasti, en það er langt í frá að ég sé það núna. Vona bara að hæfir menn þori að sækja um og að sá hæfasti verði skipaður. Eitt er víst að það verður bæði fróðlegt og skemmtilegt að fylgjast með störfum dómnefndar og svo ekki síður hvort að farið verði eftir hennar áliti. En eins og hinn mæti lagaprófessor Sigurður Líndal, sem er að fara að kenna mér eftir nokkra daga, en ég tel það sé mikill fengur fyrir Bifröst að hafa fengið hann,(Verst eða best að hann les örugglega ekki þetta blogg.Woundering)en það sem skyldi sagt er, er að Sigurður ritar eftirfarandi í greiná visir.is

"Nú var megintilgangurinn með því að setja í lög nr. 92/1989 ákvæði um dómnefnd sem síðan voru sett í dómstólalög nr. 15/1998 að styrkja sjálfstæði dómstóla og auka traust almennings á því að dómarar séu óháðir handhöfum framkvæmdarvalds. Þetta var gert vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem niðurstaðan var, að ekki væri nægilega greint milli dómsvalds og framkvæmdarvald í héraði. Auk þess átti nefndin að vera hvatning til lögfræðinga sem hygðu á dómsstörf að afla sér framhaldsmenntunar og leggja stund á fræðistörf á sviði lögfræði."

Gæti haldið áfram mikið lengur, en læt þetta duga í bili. Vona bara að hæf manneskja sæki um og fái starfið verðskuldað.

Góðar stundir

 


Næsta síða »

Höfundur

Leifur Runólfsson
Leifur Runólfsson
Hér mun höfundur blogga um sín hugarefni. Vert er þó að geta þess að hann mun forðast í lengstu lög að blogga um sín persónuleg málefni enda á slíkt ekki heima á bloggsíðum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • pamela anderson
  • pamela anderson
  • island3
  • her
  • island1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband