Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Vegirnir fyrir vestan

Mér hefur ávallt þótt mikið til vestfjarðarkjálkans koma. Sjálfur var ég í sveit sem krakki á sunnanverðum vestfjörðum og svo hef ég tvívegis íhugað það alvarlega að flytja vestur á Ísafjörð. Hef oft komið til Ísafjarðar, á þar marga góða kunningja og þyki mikið til bæjarins koma.

Er ég var á leið heim úr vinnunni í dag, var verið að ræða í útvarpinu vegagerð á vestfjörðum. Sagt var frá því að nú yrði vegaframkvæmdum frestað sökum kreppunnar. Mér varð hugsað til þess að vegaframkvæmdum fyrir vestan var frestað í góðærinu einnig, þá sökum mikillar þenslu í þjóðfélaginu. Þannig má væntanlega segja að vegirnir fyrir vestan séu bæði fórnarlömb ofþenslu og fórnarlömb kreppunnar.

Svona til gamans ætla ég að láta fylgja hér með eina sanna sögu, frá því að ég var sölustjóri stórmarkssviðs hjá stórri verslunarkeðju hér á landi. Við fórum mjög reglulega um landið og seldum vörurnar okkar eins og gengur og gerist. Varðandi vestfirðina þá var yfirleitt látið duga að fljúga á Ísafjörð. Eitt vorið sendi ég þó tvær sölukonur akandi um vestfirðina, þær tóku ferjuna Baldur og þrættu vestfirðina. Er þær komu tilbaka sögðu þær við mig eitthvað á þessa leið, reyndar í gríni; Leifur, þú getur gleymt því að senda okkur aftur keyrandi vestur, í fyrsta lagi ef við vorum óléttar er við lögðum af stað þá erum við það ekki lengur, því vegirnir eru svo holóttir að fóstrið myndi ekki þola hristinginn. Í öðru lagi er maður var að mæta bílum þá blasti annaðhvort sjórinn við manni eða fjallshlíðin og vegirnir eru mjög mjóir og í þriðja lagi þá búa aðallega útlendingar fyrir vestan." Ég hótaði því reyndar að senda þær á 9 mánaða fresti svo þær yrðu ekki óléttar. Ferðin gekk reyndar vel hjá þeim og önnur þeirra er allavega búinn að eignast börn síðan. Hvort hún hefur farið aftur vestur veit ég ekki. Enda eru fjöldamörg ár síðan að ég hætti hjá þessu annars góða fyrirtæki.

Góðar stundir


Ekki brjóta á börnunum!!!

Áður en langt um líður munu hátíðarnar ganga í garð með tilheyrandi gleði og ánægju fyrir flest okkar. Við munum gleyma kreppunni í smástund, njóta matarins, gjafanna og síðast en ekki síst samverunnar við hvert annað. Fátt er skemmtilegra um hátíðirnar en að vera með börnum sínum og njóta stundarinnar með þeim. Spjalla við þau, spila, syngja og jafnvel fara í kirkju saman. Auðvitað er misjafnt hvað hver og ein fjölskylda gerir saman enda er það aukaatriði. Aðalmálið er að njóta samverunnar, styrkja fjölskylduböndin, eiga hátíðlega og skemmtilega stund saman.

Því miður eru all mörg dæmi um það, að skilnaðarbörn sjái einungis annað foreldri sitt þrátt fyrir fyrirmæli barnalaga um að börnin eigi rétt á að umgangast og þekkja báða foreldra sinna, svo lengi sem það fer ekki gegn hagsmunum og þörfum barnsins að mati dómstóla eða lögmælts stjórnvalds. Ástæður þess að barn/börn sjái einungis annað foreldrið geta verið mýmörg og ætla ég ekki að nefna þau öll hér í þessari stuttu grein. Ein af sorglegri ástæðum er þó sú, að annað hvort foreldrið ákveður að „hefna“ sín á hinu foreldrinu og neita því um umgengni við barnið/börnin um hátíðarnar. Þannig telur foreldrið að það sé að brjóta á hinum aðilanum, en í raun og veru, þá er það einungis að brjóta á þeim sem því þykir vænst um, það er barninu/börnunum sínu(m), en ekki á hinu foreldrinu. Flest öll börn þykja vænt um báða foreldra sína og líta upp til þeirra beggja. Enda erum við foreldrarnir fyrirmynd þeirra. Það er nauðsynlegt að tala aldrei illa um hitt foreldrið í nærveru barns, alveg sama hversu illa hitt foreldrið hefur komið fram. Þetta virðist því miður all oft gleymast í skilnaðarmálum. Leyfum börnunum að njóta hátíðanna og samveru við báða foreldranna. Það er réttur barnanna, ekki brjóta á þínu eigin barni.

Góðar stundir

Höfundur

Leifur Runólfsson
Leifur Runólfsson
Hér mun höfundur blogga um sín hugarefni. Vert er þó að geta þess að hann mun forðast í lengstu lög að blogga um sín persónuleg málefni enda á slíkt ekki heima á bloggsíðum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • pamela anderson
  • pamela anderson
  • island3
  • her
  • island1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 22519

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband