Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Vöruskortur

Ljósaperan inni á baði sprakk hjá mér, svo ég ákvað að skreppa út í verslun 10-11 og kaupa ljósaperu. Þar gat ég valið á milli þess að fá rauða, bláa eða gula ljósaperu. En þeir áttu ekki til glæra ljósaperu og afgreiðslumaðurinn sem var á vakt, sagðist vera búinn að bíða í ca mánuð eftir glærum perum. Þar sem að ég þjáist af valkvíða ákvað ég að bíða til morguns með að velja hvaða lit af peru ég ætla að hafa inni á baði. Þangað til verður annað hvort bara myrkur þar inni eða ég mun notast við kertaljós.

Allar tillögur velkomnar.

Góðar stundir


Obama McCain

Jæja þá er landið þar sem ég fæddist í fyrir allmörgum árum og landið sem faðir minn býr í, ásamt mörgum öðrum úr föðurfjölskyldunni að kjósa sér forseta. Er ég vakna í fyrramálið þá ætti að vera ljóst hvort að Barack Obama verði kjörin forseti eða John McCain. Reyndar tel ég að það sé frekar öruggt að Obama vinni þetta.

Það er í raun ótrúlega merkilegt að maður sem á hvíta móður og svartan föður frá Kenýa, skuli verða næsti forseti Bandaríkjanna, þar að auki á hann fullt af hálfsystkinum í Kenýa (sem geta ekki kosið hann). Ólst upp um tíma á Indlandi og á hálfssystur sem á Indverskan föður. Svo eftir að hann flutti frá Indlandi, bjó hann um tíma hjá Ömmu sinni og afa á Hawaii. Þangað til að móður hans flutti aftur til Hawaii frá Indlands. Það sem er svo ótrúlegt við þetta er að bandaríkjamenn eru mjög íhaldssamir og margir hafa lítið álit á blökkumönnum, hvað þá kynblendingum og ekki bætir úr skák að hann skuli vera skilnaðarbarn. Því fjölskyldan hefur hingað til skipt miklu máli í bandaríkjunum. Obama er í raun að framkvæma það sem flestir hafa talið ómögulegt. Að brjótast til metorða against all odds. Ég tel næsta öruggt að hann verði kosinn í nótt, veit allavega ef ég ætti að velja á milli McCain og Obama, þá er engin spurning um að ég myndi kjósa Obama Barack.

Góðar stundir

 


Fjöldi þingmanna, er hann raunhæfur?

Tölfræði getur verið bæði skemmtileg og fróðleg. Ég ákvað í gamni að taka saman smá tölfræði um fjölda þingmanna á noðurlöndunum versus fólksfjölda viðkomandi lands. Fólksfjöldatölurnar eru fengnar af heimasíðu hagstofu viðkomandi lands og miðast við 1 janúar 2008. Fjöldi þingmanna eru teknir af vef viðkomandi alþingis, hverju þingið nefnist í viðkomandi landi, (stortinget, folkstinget, riksdagen og eduskunta).

Ísland 
Fólksfjöldi 1 janúar 2008313.376
Fjöldi þingmanna63
Fjöldi íbúa á hvern þingmann4.974
  
Sviþjóð 
Fólksfjöldi 1 janúar 20089.187.234
Fjöldi þingmanna349
Fjöldi íbúa á hvern þingmann26.324
  
Finnland 
Fólksfjöldi 1 janúar 20085.300.484
Fjöldi þingmanna200
Fjöldi íbúa á hvern þingmann26.502
  
Noregur 
Fólksfjöldi 1 janúar 20084.737.200
Fjöldi þingmanna169
Fjöldi íbúa á hvern þingmann28.031
  
Danmörk 
Fólksfjöldi 1 janúar 20085.475.791
Fjöldi þingmanna179
Fjöldi íbúa á hvern þingmann30.591

Á þessum töflum sést að það eru langflestir þingmenn per íbúa hér á landi. Þó svo að það sé kannski ekki hægt að ætlast til að það séu jafnmargir íbúar á bak við hvern þingmann hér á landi, þá held ég samt að það mætti fækka þeim töluvert, laga þessa tölfræði og draga þannig úr útgjöldum fyrir íslenska ríkið. Ekki veitir af í þessari kreppu. Ég tek undir skoðanir þeirra sem telja að það megi fækka þingmönnum niður í ca 30 - 33 þingmenn. Að mínu áliti ætti einnig að gera Ísland að einu kjördæmi þannig að þingmenn myndu frekar hugsa um heildina í stað þess að vera að stunda kjördæmapot með tilheyrandi kostnaði fyrir allt þjóðfélagið. Víst við erum farinn að tala um kostnað, þá er spurning með eftirlaunafrumvarpið og þessa aðstoðarmenn landsbyggðaþingmanna.

Góðar stundir 


Sagan af eyjunni í norðri

Norge

Fyrir rúmlega 1.000 árum fóru nokkrir ungir Norsarar í útrás. Þeir höfðu fengið nóg af skattálagi síns konungs. En á þeim tíma voru skattar mjög háir í Noregi. Menn áttu fyrir vikið erfitt með að ná endum saman og lífa sómasamlegu lífi. Þessir menn ákváðu að taka eitthvert til sinna ráða og einn af þeim hét Ingólfur Arnarson og ákvað hann að sigla út á úthafið og sjá hvert hann myndi lenda.

island2Eftir að hafa siglt í einhvern tíma, kom hann og hans hópur að landi sem fékk nafnið Ísland. En landið hafði verið ísi þakið er fyrsti maðurinn kom til landsins. Eftir smá siglingu ákváðu þessir menn að setjast að á suðvesturhorni landsins. Brátt fylgdi fleira fólk í kjölfarið.

Ástæðan fyrir því að menn fluttu til Íslands var að það var nægt landrými, landið vaxi skógi, engir óvinveittir frumbyggjar og fjandsamlegir komumenn, svo sem ránsmenn, sem áttu þangað lítið erindi, enda betra að ræna í kaupstöðum og þorpum þar sem var bæði fleira og ríkara fólk.

Sá fólk fram á bjarta tíma langt í burtu frá Noregskonungi og skattheimtumönnum hans.  Á Íslandi skyldi ríkja mikið frelsi og litlir skattar. En hér skyldu einungis úrvalsmenn fá að búa. Menn sem voru óalandi og óferjandi voru dæmdir til skóggangssektar, sem þýddi að menn voru gerðir útlægir og réttdræpir. 

Framan af gekk allt vel.island1 Menn lifðu í friði og ró. Að vísu gekk fljótt á skóginn og hann óx hægt. svo að hann eyddist nánast allur upp á endanum. Norðmenn gleymdu ekki þessum mönnun í vestri og talsverð samskipti var á milli þeirra sem bjuggu á Íslandi og í Noregi. Menn sóttu til dæmis fyrstu lögin á Íslandi til Noregs, en brátt varð Íslandi hluti af Noregi og svo síðar hluti af Danaveldi. Lifði fólk hér um  tíma við mikla eymd eftir bæði ýmsar hamfarir og einokunarverslun dana. En Íslendingar risu að endingu upp á afturfæturna og mótmæltu allir sem einn og kröfðust sjálfstæðis, eftir að Danir hættu að nenna að hlusta á okkur, meðal annars sökum þess að þeir voru hersetnir, ákváðu þeir að verða við því og veittu íslendingum sitt langþráða sjálfstæði á nýjan leik. 

herSíðan kom ameríski herinn til landsins með honum fylgdi ekki bara dátar og ný húskynni í formi bragga, heldur einnig gjaldeyrir. Allt i einu fóru íslendingar að eiga peninga. Gátu keypt lúxusvörur, sjónvarp kom til landsins að ógleymdu kanaútvarpinu. Lífið fór að leika við hvern mann, en svo voru sumir sem ákváðu að fara í heilsubótargöngu einu sinni á ári og gengu þá frá Reykjavík til Keflavíkur og kölluðu Ísland úr nató og herinn burt. Að endingu náðu þessir göngugarpar sínu fram og herinn fór og gjaldeyririnn sem kom með þeim hætti að koma. Menn áttuðu sig ekki á þessu. Enda viðskiptamenn komnir í svokallaða útrás og keyptu allt sem hægt var að kaupa, þá sérstaklega í Danmörku og Bretlandi. Flugu um á einkaþotum. Síðan voru þeir einnig mjög duglegir við að kaupa í sínum eigin fyrirtækjum, það var talið gott að geta seld sjálfan sig sjálfum sér, þannig jukust verðmætra margra fyrirtækja.

island3Íslensku viðskiptamennirnir fjármögnuðu kaupin sín  með því að lána alþýðufólkinu á okurvöxtum, ásamt því að lánin voru verðtryggð, enda voru þeir búnir að eignast bankanna, settu á stofn útibú erlendis til að fá fleiri innlegg og tóku einnig erlend lán til að fjármagna útrás sína, sem eftir var tekið um allan heim. Þvílík snilld. En allt í einu vaknaði einn af þeim sem hafði verið að lána íslensku bönkunum upp af værum draumi og komst að því að hann hafði engin veð og þeir áttu ekkert. Skapaðist þá mikið óveður á fjármálamörkuðum og þá sérstaklega á fjármálamörkuðum á Íslandi, þar sem að eftirlit hafði verið nánast ekki neitt. Geysir þar í dag mikið óveður sem enginn vill koma nálægt og nú sjá flestir íslendingar aðeins eina lausn, það er að gefa eftir sjálfstæði landsins og ganga inn í Evrópubandalagið. Hvað skyldi Ingólfur gamli hugsa í dag í gröfinni sinni, skyldi hann leiða hugann af öllum þeim stórveldum sem hafa komið og farið og hugsað með sér, nei nei nei, ekki sleppa frelsinu, eða skyldi hann bara yppa öxlum og hugsa, tímarnir eru breyttir.

Það sem ég held, er að frelsið sé best, í útrás ber að fara, en það þarf að gæta hófs í henni og fara varlega og að lokum er nauðsynlegt að hafa gott eftirlit, en ég tel að eftirlitið hafi brugðist fyrst og fremst.

En hvað veit ég, það eina sem ég veit er að þetta er orðin allt of löng bloggfærsla.

Góðar stundir


Höfundur

Leifur Runólfsson
Leifur Runólfsson
Hér mun höfundur blogga um sín hugarefni. Vert er þó að geta þess að hann mun forðast í lengstu lög að blogga um sín persónuleg málefni enda á slíkt ekki heima á bloggsíðum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • pamela anderson
  • pamela anderson
  • island3
  • her
  • island1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband